<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, maí 10, 2004

ÚKÍ, það er komið nýtt lúkk á bloggerinn, helv. kúl bara :) vinni vinni vinni vinni það er það sem ég er að gera þessa dagana. Mæðradagurinn var í gær og það sem ég gerði fyrir mömmu mína var að ég fór með litla bróður mínum að bera út Fréttablaðið. Sko án þess að hún vissi af því. Eða þangað til Haukur skreið upp í rúm til hennar þegar við vorum búin og sagði henni til mikillar gleði, að hann væri búinn að bera út og hún þyrfti ekki að fara á fætur :) Annars er ég farin að hlakka mikið til þess að koma réttu róli á sólarhringinn hjá mér!! Ég á bara 8 nætur samtals eftir af nætruröltsvinnu. Svo fer ég að vinna á daginn, ÚTI. Það er alveg langbest að vinna úti á sumrin ;) wello well best að koma sé í háttinn...

|

þriðjudagur, maí 04, 2004

Edda Björk vinkona mín hefur bæst í hóp bloggara :) jibbí jei! Allt gott í fréttum eins og alltaf þessa dagana. Fékk reyndar útborgað undir fátæktarmörkum. uhhh kannski ekki gott að segja þetta þegar það er fullt af fólki sem þarf að lifa þannig, en ég meina hey! 60000, er ekki mikið að lifa á þegar það er 6000 eftir þegar ég er búin að borga allt. Já og nei því ég á eftir að láta skoða bílinn. KRÆST! Jæja en fyrir utan það er allt gott. Bara mánuður eftir hjá Shell og svo tekur við skátavinnan í sumar og mjög líklega skóli í haust. Hvaða skóli??? það er ekki vitað enn.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com