<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, mars 30, 2004

Stór ákvörðun... samt ekki ákvörðun lífsins neitt sko... það er annað hvort að hrökkva eða stökkva. Svo er ég líka að spá í skólann í haust, endalaust hvað peningar þurfa að þvælast fyrir manni :/ ... Þetta reddast :) ég kann ekki að virkja kommentakerfið mitt!!

|

fimmtudagur, mars 25, 2004

ARGIPARG!! allir linkarnir mínir duttu út þegar ég var að fikta eitthvað í gær :( Núna hefst vinnan aftur við að koma þeim á réttan stað.

|

miðvikudagur, mars 24, 2004

Já og herrðu nú mig!! Í dag á ég einmitt 8 ára fermingarafmæli. Til hamingju með það :)

|
Þá er loksins komið að því að ég fer að nota þessa síðu mína sem ég byrjaði að setja upp snemma í haust, eins og þið kannski sjáið. Þannig er nú mál með vexti að Upsaid(drasl) er að hætta með ókeypis blogg. Glætan spætan að maður tími að borga fyrir þetta ruglumraus ;) þannig að þá er bara að skipta.... Var á mjög skemmtilegu og spennandi skátaþingi um síðustu helgi þar sem kosinn var nýr skátahöfðingi. Sem í fyrsta sinn er kona! Hún heitir Margrét Tómasdóttir. Síðan var nú jú aðeins kíkt út á lífið á laugardagskvöldinu. Þegar ég hugsa um það þá er liðinn alveg mánuður frá því síðast. En það var einmitt í afmælinu hans Tandra gamla ;) Annars lifi ég bara lífinu lifandi þessa dagana og er í góðu fjöri

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com